Skip to product information
1 of 1

My Make-Up

By Harpa Kára Pro Sett 25stk

By Harpa Kára Pro Sett 25stk

Almennt verð 39,990 kr.
Almennt verð Afsláttarverð 39,990 kr.
-0% Uppselt
Með VSK. Sendingarkostnaður reiknaður í greiðsluferli.

Pro förðunarsett sem inniheldur 25 förðunarbursta

*Ath. Burstaveski selt sér

Bursti nr. 01 – The Small Angled Brush
Afar fíngerður skáskorinn bursti sem hentar vel í eyeliner og í mótun augabrúna.

Bursti nr. 02 – The Angled Brush
Fíngerður skáskorinn bursti sem hentar vel í eyeliner og í mótun augabrúna.

Bursti nr. 03 – The Flat Shader Brush
Þéttur og flatur bursti með mjúkum burstahaus sem tryggir jafna  og námkvæma ásetningu. Hentar vel í kremvörur, svo sem kremaða varaliti, augnskugga og hyljara. 

Bursti nr. 04 – The Buffing Brush
Lítill blöndunarbursti sem hægt er að nota á ýmsa vegu.
Hentar einstaklega vel til að gefa þétta og djúpa áferð á þau svæði sem óskað er eftir.

Bursti nr. 05 – The Detailed Blending Brush
Fíngerður blöndunarbursti sem hentar afar vel til að skerpa á glóbus línunni á augnsvæðinu. Ómissandi í nákvæmisvinnu.

Bursti nr. 06 – The Angled Brow /Liner Brush
Flatur og þéttur bursti með skörpum skáskornum burstahaus sem veitir auðvelda stjórn og nákvæmni.

Bursti nr. 07 – The Oval Crease Brush
Mjúkur ogg fíngerður skyggingarbursti með mjóum og ávölum burstahaus sem gefur góða stjórn við ásetningu og blöndun á augnsvæðið. Burstinn er minni en hefðbundinn blöndunarbursti og hentar afar vel fyrir minni augnsvæði.

Bursti nr. 08 – The Soft Concealer & Blending Brush
Þéttur og mjúkur blöndunarbursti sem blandar hyljara og öðrum kremvörum fallega inn í húðina.

Bursti nr. 09 – The Perfect Eyeshadow Brush
Klassískur augnskuggabursti til að fá þétta og fallega áferð af augnskugga. Stærð burstans hentar öllum umgjörðum vel.

Bursti nr. 10 -  The Packing Brush
Fjölhæfur nákvæmisbursti sem gefur mikla þekju og jafna áferð.

Bursti nr. 11 – The Blending Brush
Hinn fullkomni blöndunarbursti. Hentar vel til að fá jafna og fallega blöndun þegar kemur að augnsvæðinu. Nýtist einnig afar vel í kremaðar vörur á augnsvæðið.

Bursti nr. 12 – The Flat Cream Brush
Flatur og þéttur bursti með ávölum burstahaus sem er hannaður til að pakka kremvörum á augu, húð og varir.

Bursti nr. 13 – The Detailed Powder Brush
Lítill og mjúkur bursti sem hentar fullkomlega fyrir nákvæma ásetningu púðurvara.  

Bursti nr. 14 – The Controlling Blending Brush
Þéttur blöndunarbursti sem hægt er að nota á ótal vegu. Hvort sem það er til að leggja  augnskugga á augnsvæðið eða til að fullkomna blöndunina.

Bursti nr. 15 – The Multi Use Blending Brush
Þéttur blöndunarbursti sem veitir fallega og auðvelda blöndun í allri förðun. 

Bursti nr. 16 – The Big Concealer Brush
Stór og mjúkur hyljarabursti sem veitir góða blöndun og nær yfir mikið svæði í einu. Notist í fljótandi og kremaða hyljara og auðveldar blöndun fyrir náttúrulegt útlit.

Bursti nr. 17 – The Multitasker Brush
Þéttur og flatur förðunarbursti sem hentar einstaklega vel í farða, í skyggingar og kremkenndar vörur. 

Bursti nr. 18. – The Small Face Brush
Frábær skyggingarbursti sem hentar vel í andlits skyggingar.  Einnig er hann tilvalinn fyrir púðurvörur í andlit og aðra nákvæmis vinnu.

Bursti nr. 19 – The Contour Brush
Mjúkur skáskorinn skyggingabursti sem hentar einstaklega vel til þess að skyggja andlitið. Hann er notaður til þess að dýpka og draga fram náttúrulega andlitsdrætti, eins og undir kinnbein, meðfram kjálkalínu, á ennið og á nefið. Notist bæði í kremaðar og púðurkenndar vörur.

Bursti nr. 20 – The Small Airbrush Brush
Lítill farðabursti sem veitir létta og góða blöndun. Notist í fljótandi og kremkenndar vörur.

Bursti nr. 21 – The Angled Foundation Brush
Hinn fullkomni skáskorni farðabursti. Þéttur og mjúkur farðabursti sem veitir einstaka blöndun og hjálpar til við að ná fram fallegri og jafnri áferð húðarinnar.

Bursti nr. 22 – The Perfect Foundation Brush
Þéttur og mjúkur farðabursti sem veitir einstaka blöndun og hjálpar til við að ná fram fallegri og jafnri áferð húðarinnar.

Bursti nr. 23 – The Airbrush Brush
Farðabursti sem veitir einstaka blöndun. Notist í fljótandi og kremkenndar förðunarvörur. Burstann er hægt að nota einan og sér eða í lok förðunar til þess að fullkomna blöndunina.

Bursti nr. 24 – The Soft Powder Brush
Afar mjúkur púðurbursti. Burstinn hentar einkar vel þegar notast er við púður, sólarpúður og kinnalit. Mjúk hárin veita létta og fallega áferð

Bursti nr. 25 – The Face & Body Brush
Stór, mjúkur og miðlungs þéttur bursti sem hentar vel á stærri svæði. Tilvalinn til að byggja upp þekju fyrir fallega áferð, bæði fyrir andlit og á líkama.  

Um Hörpu Kára:
Harpa Káradóttir förðunarfræðingur og eigandi Makeup Studio hefur síðustu tvo áratugi átt farsælan og fjölbreyttan starfsferil í förðunargeiranum. Í gegnum árin hefur hún sérhæft sig í förðunarkennslu og tileinkað sér faglega og skapandi nálgun þar sem áhersla er lögð á nákvæmni og persónulega þjónustu. Af mikilli ástríðu hefur hún byggt upp traustan feril á sviði förðunar og fegurðar með fagmennsku að leiðarljósi

„Góð förðun snýst um að draga fram það sem gerir okkur sérstök“ H.K.

Innihaldsefni

Notkunarleiðbeiningar

Bursti nr. 01 – The Small Angled Brush
Afar fíngerður skáskorinn bursti sem hentar vel í eyeliner og í mótun augabrúna.

Bursti nr. 02 – The Angled Brush
Fíngerður skáskorinn bursti sem hentar vel í eyeliner og í mótun augabrúna.

Bursti nr. 03 – The Flat Shader Brush
Þéttur og flatur bursti með mjúkum burstahaus sem tryggir jafna  og námkvæma ásetningu. Hentar vel í kremvörur, svo sem kremaða varaliti, augnskugga og hyljara. 

Bursti nr. 04 – The Buffing Brush
Lítill blöndunarbursti sem hægt er að nota á ýmsa vegu. Hentar einstaklega vel til að gefa þétta og djúpa áferð á þau svæði sem óskað er eftir.

Bursti nr. 05 – The Detailed Blending Brush
Fíngerður blöndunarbursti sem hentar afar vel til að skerpa á glóbus línunni á augnsvæðinu. Ómissandi í nákvæmisvinnu.

Bursti nr. 06 – The Angled Brow /Liner Brush
Flatur og þéttur bursti með skörpum skáskornum burstahaus sem veitir auðvelda stjórn og nákvæmni.

Bursti nr. 07 – The Oval Crease Brush
Mjúkur ogg fíngerður skyggingarbursti með mjóum og ávölum burstahaus sem gefur góða stjórn við ásetningu og blöndun á augnsvæðið. Burstinn er minni en hefðbundinn blöndunarbursti og hentar afar vel fyrir minni augnsvæði.

Bursti nr. 08 – The Soft Concealer & Blending Brush
Þéttur og mjúkur blöndunarbursti sem blandar hyljara og öðrum kremvörum fallega inn í húðina.

Bursti nr. 09 – The Perfect Eyeshadow Brush
Klassískur augnskuggabursti til að fá þétta og fallega áferð af augnskugga. Stærð burstans hentar öllum umgjörðum vel.

Bursti nr. 10 -  The Packing Brush
Fjölhæfur nákvæmisbursti sem gefur mikla þekju og jafna áferð.

Bursti nr. 11 – The Blending Brush
Hinn fullkomni blöndunarbursti. Hentar vel til að fá jafna og fallega blöndun þegar kemur að augnsvæðinu. Nýtist einnig afar vel í kremaðar vörur á augnsvæðið.

Bursti nr. 12 – The Flat Cream Brush
Flatur og þéttur bursti með ávölum burstahaus sem er hannaður til að pakka kremvörum á augu, húð og varir.

Bursti nr. 13 – The Detailed Powder Brush
Lítill og mjúkur bursti sem hentar fullkomlega fyrir nákvæma ásetningu púðurvara.  

Bursti nr. 14 – The Controlling Blending Brush
Þéttur blöndunarbursti sem hægt er að nota á ótal vegu. Hvort sem það er til að leggja  augnskugga á augnsvæðið eða til að fullkomna blöndunina.

Bursti nr. 15 – The Multi Use Blending Brush
Þéttur blöndunarbursti sem veitir fallega og auðvelda blöndun í allri förðun. 

Bursti nr. 16 – The Big Concealer Brush
Stór og mjúkur hyljarabursti sem veitir góða blöndun og nær yfir mikið svæði í einu. Notist í fljótandi og kremaða hyljara og auðveldar blöndun fyrir náttúrulegt útlit.

Bursti nr. 17 – The Multitasker Brush
Þéttur og flatur förðunarbursti sem hentar einstaklega vel í farða, í skyggingar og kremkenndar vörur. 

Bursti nr. 18. – The Small Face Brush
Frábær skyggingarbursti sem hentar vel í andlits skyggingar.  Einnig er hann tilvalinn fyrir púðurvörur í andlit og aðra nákvæmis vinnu.

Bursti nr. 19 – The Contour Brush
Mjúkur skáskorinn skyggingabursti sem hentar einstaklega vel til þess að skyggja andlitið. Hann er notaður til þess að dýpka og draga fram náttúrulega andlitsdrætti, eins og undir kinnbein, meðfram kjálkalínu, á ennið og á nefið. Notist bæði í kremaðar og púðurkenndar vörur.

Bursti nr. 20 – The Small Airbrush Brush
Lítill farðabursti sem veitir létta og góða blöndun. Notist í fljótandi og kremkenndar vörur.

Bursti nr. 21 – The Angled Foundation Brush
Hinn fullkomni skáskorni farðabursti. Þéttur og mjúkur farðabursti sem veitir einstaka blöndun og hjálpar til við að ná fram fallegri og jafnri áferð húðarinnar.

Bursti nr. 22 – The Perfect Foundation Brush
Þéttur og mjúkur farðabursti sem veitir einstaka blöndun og hjálpar til við að ná fram fallegri og jafnri áferð húðarinnar.

Bursti nr. 23 – The Airbrush Brush
Farðabursti sem veitir einstaka blöndun. Notist í fljótandi og kremkenndar förðunarvörur. Burstann er hægt að nota einan og sér eða í lok förðunar til þess að fullkomna blöndunina.

Bursti nr. 24 – The Soft Powder Brush
Afar mjúkur púðurbursti. Burstinn hentar einkar vel þegar notast er við púður, sólarpúður og kinnalit. Mjúk hárin veita létta og fallega áferð

Bursti nr. 25 – The Face & Body Brush
Stór, mjúkur og miðlungs þéttur bursti sem hentar vel á stærri svæði. Tilvalinn til að byggja upp þekju fyrir fallega áferð, bæði fyrir andlit og á líkama.  

View full details