Skilmálar
Skilmálar mymakeup.is
HDS ehf.kt. 470422-0680
Mymakeup.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir
símleiðis.
Greiðslur
Allar greiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu SaltPay/Teya á Íslandi.
Við tökum við greiðslum með VISA og Mastercard.
Afhendingar á vörum
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálardropp.is um afhendingu vörunnar. Mymakeup.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá mymakeup.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.Sendingarkostnaður er svohljóðandi:
Pantanir yfir 15.000kr
Frí heimsending
Sendingar á Droppstaði:
Höfuðborgarsvæðið
890 kr.
Aðrir staðir
1090-2490 kr.
Heimsending:
Höfuðborgarsvæðið
0-20 kg: 1350 kr.
20-60 kg: 2490 kr.
Aðrir staðir
0-20 kg: 1550 kr.
20-60 kg: 2790 kr.
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt kaupverð hennar.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.
Trúnaður (öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.