Collection: By Harpa Kára

By Harpa Kára förðunarburstarnir eru loksins komnir í vefverslun My Makeup. 

Á bak við burstana stendur Harpa Káradóttir, förðunarfræðingur og eigandi Makeup Studio. Harpa hefur starfað í förðunargeiranum í tvo áratugi og byggt upp fjölbreyttan og farsælan feril.

Öll þessi reynsla og ástríða hefur nú verið færð yfir í BY HARPA KÁRA, förðunarbursta sem eru skapaðir til að gera góða förðun enn betri.

Förðunarburstarnir eru úr vegan hárum, einstaklega mjúkir og þægilegir í notkun og henta jafnt þeim sem elska að farða sig heima og fagfólki sem gerir miklar kröfur til verkfæranna sinna.

By Harpa Kára